Don Ellione
Heimsóknir
Í dag:  44  Alls: 60104
Klukkan
Könnun
Hvert þessara nafna er elst á Íslandi?







Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 733844 dögum
24.12.2008 15:57:45 / donellione

Jóladólgurinn

Jóladólgurinn rumskar og rís

Úr rekkju sinni og geiblar sinn skolt />

Að verða á vegi hans engum er hollt />

Varast það konur, kettir og mýs />

 


Stikandi illgjarn um strætin hann æðir />

Sönglar með falsknótum orðljótar vísur />

Starir með athygli á fullungar skvísur />

Þá stúlka ein lítil sér að honum læðir />

  />

Með rauðkulið nef og veikróma röddu />

Réttir fram hönd sína og biður að heyra />

Móðir mín skuldar þér, getur ei meira />

Muldrar að áður fyrr, jól okkur glöddu />

 


Horfin að mestu sú hamingja er áður />

Hreif okkur áfram, viltu ekki vinur />

Vera okkur góð, þá ei heimilið hrynur />

Heyrt hef ég sagt, þú sért nokkuð fjáður />

  />

Dólgurinn hnussar, dirfist þú skjáta.... />

En dregur í land og lítur það bjarta />

Biðjandi andlit sem bræðir hans hjarta />

Breytir um fas og verður að játa />

  />

Af aurum á nóg, ég ekki vil skemma />

Afmælisveislu er jólin við köllum />

Frá kröfum og fjárnámi öllu við föllum />

Fælum burt ógleði og áhyggjutremma />

  />

Sú litla þá brosir og ljómar í framan />

Lævís hún kenndi dólgnum að gefa />

Hemur með kærleik hans rukkandi hnefa />

Halda má jólin öll fjölskyldan saman />

  />

Dólgurinn brosir en breytir því skjótt />

Bregður upp depurð og ætlar á brott />

Einn er á jólum sem engum er gott />

Aleinn hann situr við rökkvaða nótt />

  />

Vertu með okkur, vesalings maður />

Vertu ekki einn, það vil ég ei vita />

Við getum boðið þér vinsemd og bita />

Þá vonandi geturðu orðið glaður />

  />

Hönd í hönd þau saman snúa />

Heim í kotið þar móðirin biður />

Gleðileg jól, gamall er siður />

Við gjafir er betra en sorgir að búa />



» 0 hafa sagt sína skoðun

22.12.2008 15:36:27 / donellione

Kæri Jóli

Kæri Jóli. />

  />

Vegna breyttra aðstæðna hjá meðleigjanda mínum er égtilneyddur til að reyna á gjafmildi þína þessi jól með bón um ofur litlajólagjöf. />

  />

Bónin varðar uppá nýjan meðleigjanda. Ekki kannskialveg nýjan, ég meina ekki nýskriðinn úr egginu en má alveg vera nokkuð nýlegursvona miðað við mannsaldur og alveg bara meira en það sko ef vill.  />

  />

Það sem ég hef að bjóða handa meðleigjandanum errúmgott herbergi á Selfossi og sameiginlega stofu, eldhús og klósett meðsturtu. Svo er líka ókeypis aðgangur að sjónvarpi, þvottavél, ísskáp og öðrumheimilistækjum, þráðlausu interneti, sófa og fullt af dóti. />

  />

Svo hef ég líka að bjóða honum félagsskap með mér. Éger kassavanur, hresslegur, sanngjarn og vingjarnlegur og bara nokkuðumgegnisgóður er mér sagt. Ég er reyndar soldið mikið í leikhúsinu mínu en þáer líka engin hætta á að fá overdose af mér. />

  />

Íbúðin er líka mjög vel staðsett. Það er stutt í búð,banka, bjór og brennivín, bókasafn, bakarí, bíó, blómabúð, kaffihús, klippingu,sjoppu, strætó, sund, mat, tannlækni, vídeó, pósthúsið, ráðhúsið og leikhúsið.Gæti eiginlega ekki verið betra. />

  />

Viðkomandi getur fengið herbergið um áramótin ogjafnvel flutt inn milli jóla og nýárs. Og Jóli, þú getur mátað þá/þann sem þúheldur að passi fram að jólum og milli jóla og nýárs. Þú hringir bara í mig ís: 8480963 eða sent mér póst á donellione@gmail.com og þá finnum við hentugantíma. />

  />

Fyrir allt þetta þarf bara að borga 30 þús. á mánuði,allt innifalið. />

Ég vona að þú finnir einhvern sem passar í skóinn minneða undir tréð handa mér, mér finnst svo leiðinlegt að búa einn og þá á ég líkasvo lítinn pening þegar fram í sækir. Vona að þú getir uppfyllt þessa litlu óskmína kæri Jóli. />

  />

Kær kveðja />

  />

Þinn Don />


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2008 01:40:51 / donellione

Gerum uppreisn

  />

Það hefur líklegaekki farið fram hjá neinum Íslendingi að Ísland er annað í dag en fyrir örfáummánuðum. Allir vita hvað gerst hefur á yfirborðinu en almenningur veit ekkerthvað hefur gerst í dimmum reykfylltum bakherbergjum fjármálastofnana, ríkisstjórnarinnarog þingmanna. Eitt er þó vitað að þeir sem bera ábyrgð á hruni þjóðfélagsinshafa á engan hátt borið sína ábyrgð í þessu máli og sitja enn sem fastast. Þeirsem raunverulega komu okkur í þrot sitja nú við fulla aska sína og éta á siggat og fylla vasana af peningum frá ríkinu við að rannsaka eigin afglöp.Hvernig getum við sem þjóð látið þetta yfir okkur ganga? Þetta er eins og aðláta dómara knattspyrnuleiks skera úr um hvort hann hafi dæmt rétt eða ekki íleiknum.

Shakesphere orti svo snilldarlega ímeistarverki sínu Hamlet ,,Það er eitthvað rotið í Danaveldi”. Ég vil heimfæraþetta upp á Ísland með orðunum það er eitthvað rotið í bankaveldi. Það kemursífellt betur og betur í ljós að Íslenskt stjórnkerfi og fjármálakerfi ervaðandi í spillingu sem mig grunar að sé áratuga hefð fyrir innanstjórnkerfisins og fari síst minnkandi. Það má segja að ástæðan sé kannski súað það er ekki svo langt síðan við vorum í Danaveldi. Við erum ung þjóð oghöfum kannski ekki enn lært hvernig sjálfstæð þjóð knýr fram réttlæti gagnvartægivaldi stjórnvalda.

Hér á landi er þaðekki til siðs að menn í ábyrgðarstöðum víkji þó þeir verði uppvísir aðembættisglöpum, spillingu eða löglegri en siðlausri háttsemi. Ég minnist þessþegar ný ríkisstjórn var mynduð í Svíþjóð eftir síðustu kosningar og einnráðherra ríkisstjórnarinnar var settur af því hann hafði ekki borgaðafnotagjöldin. Þetta kallast að sína ábyrgð. Þetta þekktist ekki á Íslandiþangað til nú á haustmánuðum. Þá sagði Bjarni Harðarson af sér þingmennskunokkrum klukkustundum eftir alvarleg mistök í starfi. Fólk spurði þá ífurundran, af hverju sagði hann af sér, hann hefði alveg getað setið áfram. Égspyr þá á móti, af hverju finnst okkur það skrítið? Af hverju er það ekkieðlilegt?

            Öðruhvoru dúkka upp viðtöl við útlendinga hér á landi um þeirra álit á ástandinu ogvekur nær undantekningalaust mesta furðu hjá þeim hversu linir Íslendingar eruað mótmæla og að löngu væri búið að efna til óeirða í þeirra heimalöndum. Égheld að svarið við þessu sé að við erum einfaldlega svo óreind í mótmælum aðvið erum enn að prófa okkur áfram. Eins og áður sagði er stutt síðan við fengumsjálfstæði og við erum líkt og lítið barn í samfélagi þjóðanna. Lítil börnþurfa að læra og við erum ennþá að læra af reynslunni. Við höfum prófað ýmsartegundir af mótmælum en höfum ekki hitt á þá réttu ennþá, ekki nógu róttækaaðferð sem neyðir stjórnvöld til samvinnu við okkur, þjóðina, sem erum í raunatvinnurekendur þeirra og þau eru fulltrúar okkar líkt og stjórnarmennfyrirtækja starfa í umboði hluthafa. 

Undanfarnar vikurhafa verið reynd fjöldmótmæli með ræðuhöldum og þagnareiðum, jafnframt hefurverið reynt að ganga fram með hálgerðu ofbeldi og offorsi en hvorugt hefurvirkað enda þjóðin ekki staðið á bakvið þessi mótmæli með afgerandi hætti. Égtel að ofbeldisfull mótmæli séu ekki rétt viðbrögð við vandanum þó þau virkierlendis. Við erum friðsæl þjóð og okkur hugnast ekki slík mótmæli. Ég tel líkaað orðagjálfur og þrumuræður með þátttöku lítils brots þjóðarinnar stoði lítið.Ég vil fara friðsama en áhrifaríka leið líkt og Mathama Ghandi beitti bæði íS-Afríku og Indlandi en á aðeins annan hátt.

            Íslendingareru vanir að fara ótroðnar slóðir í hverju því sem þeir taka sér fyrir hendurog það tel ég að við eigum að gera núna. Krafa þjóðarinnar er skýr, að þeir sembera ábyrgð á ástandinu víkji úr bönkum og fjármálastofnunum og að hæfir óháðiraðilar taki við uppbyggingunni, fyrr verður aldrei vinnufriður og sátt. Það semmeira er og kannski ekki allir átta sig á, fyrr öðlumst við aldrei traust ogtækifæri á að eiga viðskipti við útlönd. Hvers vegna í ósköpunum ættu erlendirfjárfestar að hafa nokkurt traust á þjóð sem arðrænir almenning víðs vegar umEvrópu og gefur svo sömu mönnum frið til að endurtaka leikinn óáreittir án þessað fá svo mikið sem væna rasskellingu? Það verða engar erlendar fjárfestingarhér á landi og við öðlumst ekkert traust í alþjóðaheiminum fyrr en við höfumskipt út þeim sem gerðu í buxurnar fyrir hönd þjóðarinnar. Við höfum valdið envið verðum að nota það þannig að það virki.

            Hvaðer gert við þær þjóðir sem sem hafa hlotið fordæmingu alþjóðasamfélagsins ogverða ekki við kröfu heimsins um að breyta sínu háttalagi? Þær eru beittarviðskiptaþvingunum. Það er mín tillaga. Við beitum stjórnvöldviðskiptaþvingunum.

Stjórnvöld lugu aðokkur að allar innistæður bankanna væru tryggðar og fólk skildi ekki hlaupa tilhanda og fóta og taka út peninga sína. Lugu segi ég því hvað gerðist jú meðpeningamarkaðssjóðina, 20-30 % þeirra gufuðu upp. En með þessu eru stjórnvöld aðvarpa ábyrgðinni á okkur og beita okkur hótunum. Ef þið takið út peninginnsetjið þið þjóðina á hausinn. Það er einmitt okkar vopn sem við getum beitt.Við stillum stjórnvöldum upp við vegg og segjum: Við tökum helming allra okkarpeninga út af reikningum bankanna þann 15. janúar ef ekki hefur verið skipt umstjórnendur í Seðlabankanum og ríkisbönkunum. Hvað gerist þá, jú bankarnir faraallir á hausinn. Þar með erum við búin að setja ábyrgðina yfir ástjórnvöld. 

Okkar sterkasta tækií þessum aðgerðum verður að uppfræða umheiminn um tilvonandi aðgerðir okkar. EfAlþjóða gjaldeyrissjóðurinn veit af yfirvofandi hættu situr hann ekkiaðgerðarlaus hjá og það gera heldur ekki hinar þjóðirnar sem eru að lána okkurpeninga vegna þess að við gjaldþrot landsins fá þeir ekkert af sínum lánum tilbaka. Við stöndum við okkar aðgerðir, það er undir stjórnvöldum komið hvortþeir setja þjóðina á hausinn eða ekki. Stjórnvöld verða föst milli steins ogsleggju bæði frá þjóðinni og alþjóðaheiminum. Þá fyrst fer ríkisstjórnin aðvinna í okkar umboði, það gerir hún ekki í dag.

            Þettaer okkar leið til að gera uppreisn, til að hefta óréttlætið og spillinguna semekkert mun breytast ef við ekki rísum upp fyrir okkur sjálf sem sjálfstæð þjóðog fyrir börnin okkar svo þau verði ekki arðrænd líkt og gert hefur verið viðokkur áratugum saman. Við höfum valdið og nú er tækifærið til að nýta það, aðláta rétta aðila taka ábyrgð á gjörðum sínum. Sýnum að við séum sjálfstæð þjóðog getum staðið saman.

  />

Ég vitna í Jón Sigurðsson sem færði okkurfrelsið sem þjóð: ,,Vér mótmælum allir!”


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2008 02:18:35 / donellione

Smá

Misstigin ást

Ég græt þegar ég er gamall
gildi þau er svík ég nú
sár þá sit ég einsamall
svikið hef ég mína trú

Kvenkynið er kyndug skepna
kveikir mörgum manni þrá
Bölvað getur reynst að bera
brostna von um stúlku að fá

Varir hennar óvart vætti
vörður hugans svaf þá stund
Ef ráð ég hefði og snúa mætti
því óvelkomna boði á hennar fund

Horfið burt úr höndum mínum
hefur stúlkan sem ég ann
Aldrei meir í örmum þínum
ástúðlega ég hvíla kann




» 0 hafa sagt sína skoðun

16.11.2008 23:53:42 / donellione

Af hverju er þessi mynd?




Hvað er þetta? Tók mig smá tíma að átt mig á myndinni. 

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.10.2008 02:59:19 / donellione

Þrjóskir Íslendingar og gjaldþrot kapítalismans

Segja má að Íslendingar hafi afrekað margt á þrjóskunni og hún hafi löngum haldið lífi í þjóðinni. En öllu má ofgera og það er líka hlutur sem þjóðin hefur verið dugleg í undanfarin ár í faðmi velmegunar og ofgnótta. Maður hefði haldið að flestir hefðu lært eitthvað af því að fara flatt á eyðslufylleríinu síðustu ár og hefðu séð ljósið í yfirdraumaeignastefnunni þegar partýið var búið og innistæðan á lífsgæðakreditkortinu er komin langt niður fyrir núllið. 



Maður hefði haldið að vísitölufjölskyldan sem samanstendur af snobbkenndu þykjusturíku margfráskildu pakki með 2 börn og 3 önnur börn úr hinum og þessum hjónaböndum, 5-12 milljón króna jeppa, 2 aðeins ódýrari lúxuseinkabíla, hjólhýsi álíka stórt og meðal sumarbústað, sumarbústað í 5-faldri yfirstærð, 2 flatskjái í hvert herbergi með heimabíókerfi, vélsleða og fjórhjól auk hins 300-400 fermetra einbýlishúss, væri búin að læra með stigvaxandi greiðslubyrgði að hún hafi eytt um efni fram í góðærinu en því miður virðist sannleikurinn vera liggja langt því frá. 



Meðan heimskreppa leggur hvern Íslenska bankann af öðrum að fótum sér keppast Íslendingar við að hlaða upp óborguðum afborgunum af visakortunum og auka skuldir heimila sinna sem aldrei fyrr. Nú síðustu helgi opnaði enn ein verslunarmiðstöðin í grennd við Korpúlfsstaði og viti bornir menn hlógu innra með sér hvað mönnum gengi til að opna risa verslunarmiðstöð þegar allt væri á leið til andskotans á landinum. 



En sá hlátur breyttist fljótt í eitt allsherjar spurningarmerki í ofurhástöfum, undrunarsvip sem náði frá hársverði og niður fyrir nafla auk reiði sem orsakaði ítrekaðar svívirðingar og yfirdrullunarhátt gagnvart þjóðfélaginu. Inn á milli þúsunda frétta af yfirvofandi gjaldþrotum, atvinnuleysi og örbyrgð heimila, fyrirtækja og atvinnulífs komu fréttir af enn stærra kaupæði en áður hefur sést á Íslandi við opnun þessarar nýju hallar kapítalismans. 



Hvað gengur þessu fólki til? Er það ekkert að fylgjast með? Hefur það ekki kíkt á reikningana sína og heimabanka nýverið? Skilur það ekki að við erum að upplifa dimmustu öngstræti þjóðarinnar í fjármálum nánast frá upphafi landnáms?
 


Ef Íslendingar gera eitthvað betur en að eyða peningum, þá er það að eignast ný heimsmet. Það virðist vera í uppsiglingu núna. Heimsmet í skuldum heimila, heimsmet í gjaldþrotum heimilanna, heimsmet í yfirdráttarheimildum, heimsmet í opnun verslunarhúsnæðis á krepputímum, heimsmet í offjárfestingum, heimsmet í ráðleysi stjórnvalda, heimsmet í að verðlauna þá sem bera ábyrgð á vandræðum okkar.



Hvað gerðu jú stjórnarliðar þegar ljóst var að í óefni stefndi í sumar? Ekki neitt heldur biðu þeir í vari líkt og þegar maður bíður af sér rigningardembu en áttuðu sig ekki á að þetta er ekki bara demba heldur syndaflóð. Og það flæðir ekki fyrir syndir feðranna heldur syndir okkar núlifandi, syndir gleypandi dverganna ógurlegu frá Íslandi sem réðust gegn Golíat umheimsins og, eins og komið er í ljós, töpuðu. 



Til að bæta gráu ofan á svart eru þessir sömu ráðamenn svo verðlaunaðir fyrir ómakið að setja Ísland nánast á hausinn með launahækkunum fyrir vel unnin störf við að gera ekkert og því ekki að hækka þau bara aftur í tímann enda skilja þeir mikilvægi þess að predika um að draga úr útgjöldum ríkisins með því að eyða hundruðum milljarða í umsókn um sæti í öryggisráðinu (sem við fáum örugglega eftir að hafa orðið að athlægi fyrir offjárfestingar undanfarinna ára) og panta sér ferðir fyrir maka og fjölskyldur á handboltaleiki nokkrum sinnum í mánuði þegar þeim hentar svo ég tali nú ekki um mikilvægi þess koma upp öryggissveitum gegn hryðjuverkamönnum meðan löggæslan getur ekki sinnt eðlilegu vega- og miðbæjareftirliti. Þeir ákváðu þó að reyna að klóra í bakkann gegn óþarfa útgjöldum með því að kæra hverja þá sem fóru að fordæmi Oliver Twist og báðu um meira líkt og ljósmæður.



Þessir menn og konur sitja nú sem fastast og lýsa sjálfa sig sem hetjur dagsins með því að bjarga Íslandi frá gjaldþroti sem löngu hefði mátt afstýra með aðgerðum sem allir sáu að væru nauðsynlegar fyrir nokkrum mánuðum nema þessi blessaða ríkisstjórn okkar. Þeir eru fremstir í flokki aðgerða nú með pabba sinn Dabba kóng í Seðlabankanum sem sá sér leik á borði og rassskellti stóru strákana sem voru að stríða honum forðum daga, og stal öllum flotta dótinu þeirra í þágu þjóðarinnar. Og fyrst hann fékk leyfi til þess, af hverju þá ekki að ganga lengra og segja ríkisstjórninni hvað hún ætti að gera næst.



Þeir eru ósköp aumingjalegir að sjá stjórnarmenn bankanna núna sem gráta í koddann á kvöldin og koma með skottið á milli lappanna í hvert viðtalið á fætur öðru eins og 10 ára pabbastrákur sem kúkað hefur í buxurnar fyrir framan allan bekkinn. Enda ekki annað hægt þegar Dabbi kennari er búinn að skamma þá og líka Geir skólastjóri eftir skipanir kennarans um að fara að fordæmi sínu.



Og meðhjálpari Íslenskra stjórnvalda í þessu öllu saman er ekki af verri endanum, sjálfur kapítalistakóngurinn Bush, illa innrætti strákurinn sem kveikir á stórum kindli þótt honum væri bannað það og missir kindilinn svo í heyið í heimshlöðunni sem geymir uppskeru allra þjóða og í kjölfarið veldur uppskerubresti og hungursneyð.

Þetta sýnir svart á hvítu að hreinn og óheftur kapítalismi gengur ekki upp frekar en óheftur kommúnismi. Allt er best í hófi og það hefur komið bersýnilega í ljós undanfarin 20 ár. Heimstákn kommúnismans leið undir lok með Sovétríkjunum fyrir um 20 árum og nú rambar heimstákn kapítalismans, Bandaríkin, á barmi gjaldþrots eftir afleiðingar óknyttastráksins með kyndilinn sem kveikti elda í Mið-Austurlöndum til að eignast meiri peninga, stela olíuauði fátæks einræðisríkis í græðgi sinni en réði svo ekkert við eldinn og hefur siglt þjóðarskútu sinni í strand á meðan hann berst við eldinn. 



Og hverjar eru afleiðingarnar? Hrun húsnæðismarkaðsins í Bandaríkjunum sem setti af stað heimskreppu verri en nokkurri sem áður hefur sést og um leið gjaldþrot kapítalismans. Til hamingju með árangurinn herra Bush!



» 4 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 22:34:30 / donellione

Skamm skamm

Nú er fólki nóg boðið. Undanfarið hefur rignt yfir mig skömmum um bloggleysi og eymingjaskap svo stolt mitt og skapferli hefur beðið alvarlega álitshnekki og liggur undir skemmdum. 




Ég sé mér því þann kost einan að verða við þeim óteljandi óskum og hótunum um líkamsmeiðingar og lostafullum refsingum sem ég hef fengið sökum bloggleysis og þagnareiðsháttar sem þykir afar smekklaust og viðurstyggilegt af minni hálfu. Meira segja menn búsettir í Rússlandi með yfirlýst tengsl við KGB hafa munnhoggist og mannmyrt minn orðstír fyrir lélegan árangur á ritsviðinu.





Ég hef líka fundið mér vert viðfangsefni til umræðu. Ég var nefnilega á afar skemmtilegu og vönduðu leiklistanámskeiði um helgina í umsjón Gunnars Sigurðssonar leikara og leikstjóra. Þannig er mál með vexti að góð leiklistarnámskeið eru ekki bara fyrir upprennandi leikara heldur fyrir hvern sem er. Leiklist byggist nefnilega á því að spegla mannlegt eðli, miðla mannlegum þáttum og túlka þá fyrir áhorfendur og hvernig mismunandi karakterar geta haft áhrif á hvorn annan og hvernig undarlegar eða ósköp venjulegar aðstæður geta breytt gangi lífsins. 




Til að leikhús virki verður fólk að trúa því sem það sér og leikarinn verður að trúa því að hann geti sannfært áhorfendur. Ef leikari hefur ekki trú á sér trúir áhorfandi ekki því sem leikarinn er að reyna að túlka á sviðinu. 

Þetta er alveg eins með daglegt líf. Til eru dæmi um þetta nánast daglega í lífi hvers einast manns, hvort sem um er að ræða foreldra, kennara, stjórnendur eða fyrirliða íþróttaliðs. Ef þeir eru að tala við "skjólstæðinga sína", hvort sem það eru börnin sín, liðsmenn, undirmenn eða aðrir, verður viðtakandi upplýsinganna eða skipananna að hafa trú á viðkomandi, annars taka þeir ekki mark á upplýsingunum. 




Sem dæmi er það ekki sérstaklega traustvekjandi yfirmaður sem kemur inn á fund í stresskasti með allt í óreiðu. Eins er það með foreldra sem reyna að hughreista börnin sín t.d. eftir jarðskjálfta, ef börnin skynja ótta í fasi foreldrana taka þau ekkert mark á hughreystingum þeirra. Foreldrarnir þurfa því að "leika" hina óhræddu foreldra þó svo að óttinn sé innra með þeim. 





Því miður hefur leiklist og tjáning ekki verið fastur liður í kennslu barna hingað til. Börn frá 4 - 10 ára aldri eru mjög meðtækileg fyrir leiklist og leikjum tengdri henni. Þau eru ekki orðin föst í þeim hömlum sem einkennir fullorðið fólk og tjáskipti þeirra. Þau þora að sleppa sér í leik og þau hafa ekki áhyggjur af áliti annarra og mörkin milli þess að gera rétt og rangt í leik eru mun víðtækari. Þetta lærir fólk í leiklist, brjóta niður mörk og leyfa sér að hugsa út fyrir kassann. 





Ég tel því afar mikilvægt, ekki síst á tímum tjáskipta í formi sms-a og msn, að börn læri mannleg samskipti maður á mann, tjá sig með orðum og athöfnum augliti til augliti við þann sem samskiptin beinast að. 

Sem betur fer er leiklist að aukast verulega í kennslu, bæði sem valfög og sem partur af kennslu barna. Ég tel að leiklist geti verið gríðarlega þroskandi fyrir einstaklinga til að öðlast meira sjálfstraust, vera opnara og vinna gegn feimni sem nýtist þessum einstaklingum til að ná lengra í lífinu. 




Ég hef verið svo heppinn að hafa alist upp við leiklist beint og óbeint frá unga aldri. Það var siður á mínu heimili í nokkur ár að við krakkarnir lékum leikrit á þrettándann fyrir foreldra okkar og stundum fleiri. Einnig léku bekkirnir og jafnvel sömdu sjálfir misgóð leikrit í barnaskóla. Fólk kannski trúir því ekki en ég er einn af þeim leikurum sem er afar feiminn að upplagi en leiklistin hefur hjálpað mér mikið við að losna úr þessum viðjum mannblendisskorts. 





Leiklist snýst svo mikið um að láta vaða, læra að þora, byggja upp sjálfstraust og brjóta múra. Þar er líka sótt að miklu leiti í brunn barnanna því langflestar leiklistaræfingar byggjast á leikjum þar sem fólk lærir að finna bernskuna hjá sjálfu sér, jafnvel án þess að vita af því. 

Og það mikilvægast er að allar góðar leiksýningar og æfingar byggjast á mistökum. Ef það eru engin mistök er þetta allt hundleiðinlegt, mistökin eru til að læra af þeim og hafa gaman og með mistökum þróast góðar sýningar í enn betri sýningar. Án mistaka verður sýningin flöt og leikararnir leiðir á henni sem skilar sér svo út í sal. Málið er að í ca. 90 % tilvika taka áhorfendur ekki eftir mistökum, þeir halda að þetta eigi að vera svona. Það er ekki fyrr en leikarinn missiri niður fókusinn og karakterinn sem áhorfendur fatta, nú er eitthvað að fara úrskeiðis. 





Sama á við um menn á fundi eða foreldra, ef þeir halda andlitinu þó þeir geri mistök skiptir það yfirleitt ekki máli. Um leið og stjórnmálamaður fer að tafsa í viðtali er hann kominn út í horn fólk missir trú á honum en ef hann nær alltaf að svara fyrir sig allt viðtalið heldur hann trúverðugleika sínum, þó svo að hann hafi e.t.v. sagt einhverja vitleysu



Það er ekki að ástæðulausu sem leiklistin hefur fylgt okkur í árþúsundir, hún kennir okkur svo margt og er í raun spegill mannlífsins og eitt það besta tjáningarform sem maðurinn hefur skapað. Ég hvet því alla sem fá tækifæri til að fara á þó ekki sé nema eitt leiklistanámskeið á ævinni að hugsa sig ekki um tvisvar heldur að slá til, sérstaklega feimnir og þeir sem eru óframfærnir. Þar eru allir jafnir enda segja margir í leiklistinni, mistök eru góð, mistökin eru vinur þinn. 

Nú ætla ég að hætta að kvelja ykkur með þessum ofurlanga pistli og þessi einn eða tveir sem nenntu að lesa hann til enda fá verðlaun, koss frá mér (skilyrði fyrir þessum verlaunum eru að vera kvenkyns, vera góð til undaneldis og ólofuð á flest alla lund auk þess að vera í góðum þokkaböndum). 









» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2008 21:05:31 / donellione

Þögnin rofin, þökk sé Húsabakka



Nú er sá ótrúlegi atburður í uppsiglingu að ég muni rjúfa þögnina á síðunni minni sem hefur svifið eins og Hrafn yfir hræi í nokkra mánuði. Ja, ætli ég notið það ekki sem afsökun að ég hafi bara ekki haft neitt að segja.

En Húsabakki er það stór viðburður að ekki er hægt að þegja. Skólinn okkar ástkæri og góði á Húsabakka í Svarfvaðardal er tilhlökkunarefni hvers árs og nú eru þau orðin 3 í röð hjá mér og fer vonandi fjölgandi.

Það er alltaf eitthvert ævintýri í kringum Húsabakka og ferðin norður var byrjaði á ævintýri sem kalla mætti Þröngt mega sáttir sitja. Hann Hörður Skúli bar á borð lítinn, sætan bíl, Suzuki Swift að gerð og var það okkar „hvíti hestur“ á leiðinni og 4 farþegar umkringdir töskum, flöskum og átröskun. En litla krúttið stóð sig vel.

Þegar á hólminn var komið, kom í ljós að mér, Herði og Einari var úthlutað hrútakofa saman en að þessu sinni var minni skjálfti í hnjám og eyrum því enginn Víðir var með sinn hrotukoncert sem jafnvel tröll og forynjur formæltu sökum hávaða og svefnfyrirbyggjandi láta.

Líkt og venjulega leið þessi stutti tími allt of hratt. Það var samt skrítin tilfinning að sitja á rassinum mest allan daginn og rýna í tölvuskjáinn og eina áreinslan sem maður fann fyrir fram að kvöldmat var þegar litli kínverjinn í hausnum á mér var hjóla á aflhjólinu sem knýr heilann rafboð hans. Óneytanlega væri ég til í aðeins meira action yfir daginn. En námskeiðið var gott, erfitt, krefjandi og mjög lærdómsríkt. Við höfðum nóg fyrir stafni enda þurfti að ræða um 3 leikrit sem gekk misvel enda höfðum við allt of miklar skoðanir og allt of mikið að segja svo umræðurnar gengu örugglega ekki eins langt inn í verkið eins og Bjarni kennari ætlaðist til í upphafi. Það sem var þó stóri plúsinn við námskeiðið var að upplifa verk hvors annars og fá verk frá hinum og gagnrýna það og koma með tillögur að breytingum.

Að venju var ýmistlegt gert til dundurs á kvöldin og um sali, brekkur og grasbala flutu augngotur með ástlegu ívafi (aðallega frá mér til allra myndarlegu stelpnanna sem nóg var af), uppljóstranir og niðurgangar, eyeliner og eyrnamergur, öskur og jarðarfarir, samkeppni og samfarir, sveppasúpa og svínakjöt, fatlafól og fótbolti, blak, Bylgja og betri stemning en nokkur getur ímyndað sér.

Hápunkturinn var svo að fá að leikstýra frábærum hópi kvenfólks (sem reyndu við mig allan tímann, var orðið soldið vandræðalegt) og sjá sitt eigið verk sett upp. Stelpurnar stóðu sig sem blaktandi blóm í haga (takk elskurnar mínar, ég er stoltur af ykkur) og ég var mjög sáttur við uppsetningu á mínum þætti.

Ég verð þó að viðurkenna að maður var nú ekki til fyrirmyndar í kvennamálunum


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.02.2008 00:22:53 / donellione

Múmínpabbinn minn, Egill the black man og Steinn á rassgatinu

Janúar

 

Dagur mánaðarins: Dagarnir í London eru dagar mánaðarins. Frábær fótboltaferð til London 29. – 31. jan með Steini bróður, Agli og Ingvari Þrándar. Þar gerðist nú ýmislegt sem ekki verður tíundað hér enda ekki einu sinni birtingarhæft í klámtímaritum kynóðra fanga með sífilis. En allir áttum við nokkur góð móment eins og þegar ég lét Stein og Ingvar labba í hálftíma í vitlausa átt að leita að mér, þegar Egill spurði um „the black man“ sem var að vinna í lobbýinu en fékk kaldar kveðjur á móti og þegar almenningsklósett rændi okkur Ingvar í West Ham.

 

roman-toilet.jpg almenningsklosett picture by donellione

 Almenningssalerni Breta eru rómuð fyrir þægindi og yndisauka

Við skulum samt segja að okkur verði ekki tekið með hlýju ef við komum aftur í bráð til London og einhverra hluta vegna voru alltaf verðir vopnaðir hríðskotabyssum nálægt okkur á flugvellinum þegar við vorum að fara. Ekki láta ykkur bregða þó það séu myndir af okkur við öryggishliðin þar.

 

Ógeðsdagur mánaðarins: 12. jan, dagurinn eftir frumsýningarpartýið. Eftir ansi langar og strangar vökur og verkefnaofframboð vikuna fyrir frumsýningu var frumsýningin ákveðinn léttir og losti fyrir mig (vil ekki segja hvað fór fram í tæknibúrinu). Það kom því kannski ekkert á óvart að ég vaknaði allt of seint til að fara í skólann daginn eftir (átti að mæta í Rvk kl. 9), ekki nema svona 7 tímum of seint að mig minnir. Þá ætlaði ég að fara eitthvað en komst að þvi mér til mikillar ánægju að bílinn var bilaður og fór ekki í gang (bölvið hans Ingvars í Fjalli var eins og barnaþula í samanburði við mitt bölv á þessari stundu).

Víðir greyið sem hafði gist hjá mér um nóttina (ekki í sama herbergi, ekki fara að fá neinar skrítnar hugmyndir hvað fór okkar á milli þessa nótt!!) ráfaði um í eyrðarleysi, villu og svima megnið af deginum og horfði á úrkynjaða náttúrulífsþætti og ameríska raunveruleikaþætti í skorti sínum á félagsskap mínum allan daginn. Ég, hinn gestrisni og gjafmildi gestgjafi, svaf bara og gaf honum hvorki hjartahlýju né vatn og brauð að éta.

Já, ég er gestrisinn!

 

Vinur mánaðarins: Ingvar og Egill, fóru með mér til London, sem er ótrúlegt þar sem þeir þekkja mig það vel að þeir ættu að vita að það er strangt og verulega sjúkt prógramm að fara með mér til útlanda. Þeir eru líka illa haldnir andlega um þessar mundir og Magnea konan hans Ingvars mun sennilega seint fyrirgefa mér þetta.

Annars kom það mér á óvart að þeir skyldu treysta mér fyrir fararstjórn í ferðinni en þar sem ég var nú veraldarvanastur (það má klappa núna) þá gerðu þeir þau stóru mistök að gefa mér lausan tauminn.

Útkoman var svo góð innkoma hjá nektarbúllunum að þeir geta tekið sér frí í einn mánuð auk þess sem Íslensku bankarnir hafa sent menn á eftir okkur með afsagaðar haglabyssur og útrunnið neftóbak sökum viðskiptahalla bankanna eftir ógnareyðslu okkar. Ferðamálaráð á líka eitthvað vantalað við okkur varðandi ímynd Íslenskra ferðamanna auk þess sem friðarsamningunum í Þorskastríðinu verður snarlega rift innan skamms og stríðið tekið upp að nýju sökum hegðunar okkar úti.

 

orskastri.jpg picture by donellione

 

Ég er samt bjartsýnn á að verða endurkjörinn fararstjóri í næstu ferð........

 

Vinkona mánaðarins: Hinar ýðilfögru sænsku systur Marina og Sonja. Þær náðu að draga mig á djammið 18. jan ásamt Steini og Agli. Að venju var ekki lognmella kringum okkur félagana frekar en venjulega.

 

MarinaogDonEllione-1.jpg marina og donellione picture by donellione

 Doninn þykir með betri mönnum í sænksri tungu

Á þessari einu djammnótt náði ég að standa eins og fullkominn bjáni fyrir utan hús í Kópavogi eftir að okkur var óbeint og í mikilli vinsemd hent út af 20 fílhraustum karlmönnum sem grýttu okkur ítrekað í snjóskaflana fyrir utan og drógu Egil með andlitið í malbikinu sem varð til þess eins að malbikið rispaðist þar sem hann er harður gaur!

Náðum að sjá Stein detta á rassgatið, skoppa með tilþrifum niður einar 8 tröppur á Gauk á Stöng við mikla hrifningu viðstaddra sem gáfu honum 9,1 í einkunn fyrir að hafa á afar fagmannlegan hátt snert óaðfinnanlega hverja tröppu sem varð á leiðinni án þess að brjóta rófubeinið (braut reyndar nokkur rifbein og braut líka nokkrar brýr að baki sér)

Við náðum að reyna að smygla inn smástelpu á Glaumbar með þvi að troða henni inn á sveittann og 5 ára gufubaðsleginn hlírabolinn sem auk þess var notaður sem gólfteppi í hrútakofa í 2 ár og lyktaði þvi ekki síður af ilmandi heitri og yndisaukandi hrútalykt

 

Glaumbar.jpg picture by donellione

 Þar er bar, þar er glaumur

Hittum Þór sem reyndi að fá okkur til að berja mann og annan, barborð og bjóra

Ég fann pabba minn frá Múmíndalnum og komst að því að ég hef verið ranglega feðraður í 26 ár rúmlega

Ég bauð stelpunum út að borða á dýrasta og fínasta veitingastaðnum sem opinn var og er rómaður fyrir glæsileika og fágun og heitir Hlöllabátar

Og að endingu náði ég að plata þær heim til mín eftir djammið þar sem þær eyddu restinni af nóttinni. Förum ekki nánar út í það..........

 

Viðburður mánaðarins: Arsenal – Newcastle á Emirates var sannarlega viðburður mánaðarins. Frábær leikur hjá Arsenal þar sem þeir sýndu alla sýna bestu takta, glæsilegur völlur og góð stemning. Þess má geta að Arsenal sigraði stórsigur, 3-0

 

Fjölskyldumeðlimur mánaðarins: Steinn, fór með mér og Agli á djamm með systrunum og kom með til London. Afleiðingarnar urðu miklar og ógnvænlegar en þess virði samt

 

Klsettskl.jpg picture by donellione

 Steini þykir endurunninn bjór hið mesta lostæti. Hér er hann að smakka einn slíkan

 

Gleðistund mánaðarins: Frumsýningin og frumsýningarpartýið 11. jan. Frumsýningin gekk vel en hvað er helst í fréttum Einar Einarsson. Jú, magaverkur aldrei meiri á Suðurlandi, hlátrasköll langt yfir viðmiðunarmörkum á Selfossi og frumsýning aldrei villtari á Íslandi. Það er nefnilega það.

Partýið var svo uppfullt af villtum meyjum og drukknum greyjum (sem sagt útriðnum hundstíkum samkvæmt skilgreiningunni á greyi). Þar var farið með gamanmál, alvörumál en allt of lítið var um tungumál, frá minni hálfu vil ég kenna um skorti á sænskum ríkisborgurum. Hörður Skúli átti eftirminnilegan leik þegar hann lék einleikinn „Villtur í sviðsmyndinni“ en hann var saminn í sameiningu af smíðagenginu, illvígu glæpagengi sem sefur aldrei og byggir íbúðir og hús á ótrúlegustu stöðum á örskömmum tíma.

 

FrumsningarpartHnerrinn2007018.jpg picture by donellione

 Hörður hinn húsvillti

 

 

 

 

 

Við Stebbi áttum mjög langan og undarlegan spuna sem þróaðist í ýmsar óvæntar og ósiðlegar áttir og olli ættbálkadeilum, afvötnunum og hjónaskilnuðum.

 

Vonbrigði mánaðarins: Bíllinn minn, hafði sig afar lítið frammi allan mánuðinn.

 

Fynd mánaðarins: Unnar Steinn sagði okkur strákunum ansi hreint skemmtilega sögu í einum kaffitímanum uppi í Fjalli í vinnunni. Hún var eitthvað á þessa leið, og hefst þá lesturinn:

Það var kunningi Unnars sem átti rollur og var með fjárhús einhver staðar á höfuðborgarsvæðinu. Eitt haustið var hann búinn að ná öllu sínu fé í hús en fór af skyldurækni í skilaréttir. Það kom svo í ljós að hann átti eina ær með 2 lömb í réttunum. Hann hafði ekki búist við þessu og var bara á Subaru Justy bifreið sem eru afar litlir bílar.Suby_justy.jpg picture by donellione Hann gat ekki farið að skilja skepnurnar eftir svo hann setti niður sætin afturí og skellti lömbunum í skottið á Justyinum, enda var þetta svona vinnubíll. Þar með var plássið búið afturí. Hann tók sig því til og skellti ánni á rassgatið frammí og setti á hana öryggisbelti. Og svo lagði hann af stað sæll og glaður til Reykjavíkur. Þegar hann kom þangað mátti hann til með að fara í bílalúguna á Nesti og panta sér eitthvað. Svo þegar hann var búinn að leggja fram pöntun handa sér kallaði hann afturí til lambanna, viljið þið eitthvað krakkar? Það hefði óneytanlega verið gaman að sjá svipinn á bólugrafna og illa lyktandi unglingnum sem var að afgreiða.

Því næst keyrði hann sem leið lá út í fjárhús og eitthvað kom skrítinn svipur á börnin hans þegar þau sáu pabba sinn keyra að fjárhúsinu með hana Móru Jóns mjög svo spennta í frammísætinu.

Og líkur hér lestrinum, góðar stundir. Jæja, hvernig slekkur maður svo á þessu helvítis apparati, er ekki hægt að drepa í þessum grammófón eða míkrófón eða hvað þetta gargan heitir. Ha, er ég ennþá í loftinu, heyrist allt sem ég segi. Hvers konar helvítist andskotans vitleysa er þetta (prump) Ahhhhh, þetta var nú hressandi. Rúgbrauðið klikkar ekki. Hvað segirðu, ertu ekki ennþá búinn að slökkva á andskotans apparatinu..........

 

Gleymska mánaðarins: Keyrði framhjá beygjunni á Húsatóftaholtinu á leiðinni upp að Fjalli einn morguninn er ég var eitthvað allt annað að hugsa (99 % líkur á að það hafi verið

nakið kvenfólk). Ég hefði því endað upp á fjöllum og kannski bara keyrt norður Kjöl ef ég hefði ekki áttað mig, byggt upp heilt hverfi á Sauðárkróki í nafni Vörðufells og selt fyrir fúlgu fjár. Þar voru þeir Vörðufellsbræður nú óheppnir að konan sem ég var að hugsa um var merkilegt skoffín sem neitaði að afklæðast fyrir sauruga drauma mína

 

Fallegbrjst.jpg picture by donellione
Þær eru sko dúllur þessar júllur, alltaf gott að barma sér yfir því

 

Óvænt mánaðarins: Það var mjög svo óheppileg uppgötvun og óhugnaleg í flesta staði þegar ég komst að því að ferðin okkar góða til London væri í miðri viku en ekki um helgi og að ég og Egill þyrftum að biðja um frí í 3 vinnudaga til að fara og að sú bón kom ekki fyrr en viku áður en við fórum út. Unnar varð nú ekki svo fúll, hann kyrkti bara einn hund, kastaði einu haughúsi út í Hvítá með berum höndum og gerði eina vinnukonu ólétta af 15 börnum, svo mikill var æsingurinn.

 

fuckyou.jpg fuckyou picture by donellione
Unnar hefur alltaf þótt illur við að eiga þegar illa stendur á hjá honum

 

Ég var því bara ansi sáttur við viðbrögðin, bjóst við þeim miklu verri.

 

 

Var líka ofarlega á óvæntlistanum að sjá mynda af Sörla Jóns í blaði í London

 

 

Lag mánaðarins: Tímarnir okkar með Sprengjuhöllinni, heyrði það mikið á alls konar árlistum og svo var það spilað helling bara eftir áramótin og engin skömm að því.

 

Mugibugi með Mugison var einnig ofarlega á listanum. Svona gratt Vestfjarðasveitarokk. Svona næstum því gott lag en samt ekki alveg. Byrjunin er þó algjör snilld

 

 

Skítalag mánaðarins: Eitthvert lag með Hjálmum sem ég heyrði þegar ég var að fara úr leikhúsinu, nokkuð örugglega um miðja nótt. Er reyndar viss um að nokkur fleiri lög með Hjálmum hafi ært siðferðiskennd mína og sálarlíf þennan mánuðinn (Æli Ælason)

 

Símtal mánaðarins: Öll hin skemmtilegu símtöl hans Egils af herbergjunum okkar niður í lobbý voru ansi hreint skemmtileg. Held að hann hafi hreinlega vitað brjóstastærð og ættartölu allra í lobbýinu, hann talaði svo mikið við fólkið þar

 

Vitleysa mánaðarins: Blessaður snjórinn sem allt um lykur. Hann sló ekki í gegn hjá okkur félögunum í vinnunni við að komast á Transitdraslinu í vinnuna þar sem hann festist oftar en einu sinni á jafnsléttu við að koma honum í og úr stæði.

Það var heldur ekkert fagnaðarefni að fá snjóinn ofan í alla útivinnuna sem entist allan mánuðinn. Alla vega voru Egill og Jói vinnufélagar mínir lítið kátir þar sem þeir héngu í spottanum á hvorum öðrum uppi á þaki að setja þakeiningarnar á.

 

 

 

GuttiogPjakkurleikasrsnjnum.jpg picture by donellione

 Þessir pörupiltar eru miklir aðdáendur tíkarspena

 

 

 

Þessi listi var mjög svo óvísindalega unninn af Bólugrafarafélagi eldri hamborgara Vestur-Yemena og annarra Rauðahafsindbyggere og Krúnurakaraklúbbi Kamtsjakahorrenglustuttpilsagellugengi Akranesskaupstaðar, þær vilja taka fram að þeir sem voga sér að klípa í rassinn á þeim verður umsvifalaust breytt í sement!

 

 

Stlpils.jpg picture by donellione

 Hún Gella Jóns þykir útsjónarsöm í að hanna ný föt úr afgöngum í vélsmiðjunni hjá Jaski bróður sínum


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.12.2007 04:14:07 / donellione

Jaskurinn

Sæl verið þið mellur og meðalgreindir menn

 

 

Jaskur er enn á ferð með sín tryggu og góðu ráð. Viskubrunnurinn er hvergi nærri tæmdur og nú skelli á ykkur einu ráði til.

 

Hver kannast ekki við það að eyða nánast heilli viku í það að mæta heim þreyttur eftir Glaur.jpg Glaður maður picture by donellionebarning í skafrenningi og frosti í vinnunni með misógáfulegum vinnufélögum sem ýmist eru nýskriðnir á ríðingaraldurinn eða komnir með þann gráa í göndulinn á sér og eltast við stuttpilsaðar unglingsstúlkur um snjóþungar göturnar en þær eru svo uppteknar við að leita sér að vínskaparheitum og löðrandi súkkulaðistrákum að þær taka ekki eftir útslefuðum hlírabolsklæddum uppgerðu gamlingjunum sem elta þær með von um að geta lokkað þær með öryggistilfinningu í formi húseigna og veðsettra sportjeppa til lags við sig í nokkur ár þangað til þeir skipta út í einhverja nýrri og ferskari týpu, og komast að því þegar maður er búinn að moka nokkur tonn af áföstum snjósköflum upp úr vinnuskónum, plömmernum og úrsérsprottnu bringuhárunum úti á stétt samkvæmt skýrri skipun kellingarinnar sem stendur bjórinn í hendinni og hótar að hella honum niður!!! ef ekki verður gengið að kröfum hennar, að það er kominn tími á að skrifa jólakortashitið einu sinni enn til allra þeirra sem maður þekkir lítið, ekkert, hefur aldrei heyrt um eða hefur eytt megninu af árinu í að drulla yfir í giftingarveislum og afmælum en maður þarf að vera góður við af því að "það eru nú jól".

Þessi stúlka er fyrsta jólaskrautið sem Jaskur Jóns setur upp á hverju ári

Minipilsflotturkjll.jpg picture by donellione

 

Hver vegna spyr ég bara, hvers vegna þarf að senda öllu þessu óþolandi, vel lyktandi snobbpakki sömu örfáu línurnar með sífellt verr útlítandi fjölskyldumynd af vindlakafnandi útúrpirraðri og illa upplýstri fjölskyldunni minni sem getur ekki setið fyrir á mynd án þess að garga svitaholurnar fullar af öskurfylltum skömmum og grenjandi frekju á öllum aldri? Hver er tilgangurinn með þessu yfirlætisvinskapheitum öllum saman sem sem undir niðri krauma af illindum og öfundskap hvers konar og jafnvel alls konar ef vel er að gáð?

 

Og svo er það fólkið sem algjörlega er lífsnauðsynlegt að senda kort þrátt fyrir að varla ímyndinaraflið geti getið sér þess til, að þetta fólk sé til. Það eru að sjálf sögðu allir þessir óþolandi ættingjar sem maður kveður ekki öðru vísi en að hrækja í andlitið á þeim eftir vel úti látið rifrildi sem hvorugur aðilinn man um hvað var, það er kaupmaðurinn á horninu sem arðrænir mann með ofurálagningu og mygluðum ávöxtum, það er maðurinn sem var svo vinsamlegur að keyra aftan á okkur fullur meðan hjákonan tottaði hann, það er bólugrafni kellingarskræki og geldi unglingurinn sem rétti kellingunni poka í Bónus í mars, það er gamla konan sem fylgdi syni okkar heim úr skólanum í rigningunni í maí af því að það var í leiðinni heim til hennar en hún dó í sumar (hvernig á hún að geta lesið kortið dauð! er hún einhvers konar uppvakningur!?) og frændi kellingarinnar sem seldi okkur helvítis drusluna sem ég er búinn að liggja undir vel olíuborinn í 3 ár að laga kúplinguna sem ekki er hægt að kaupa varhluti í nema frá Frakklandi fyrir mánaðarlaun velístrubelgds bankamanns.

 Kalli Kallason þurfti að bæta töluvert á sig til að standast þyngdarkröfur sem gerðar eru til bankastjóra

Feiturkall.jpg picture by donellione

 

Getur þetta lið ekki horft á sjónvarpið eða lesið Andrés Önd í staðinn fyrir jólakort á jólunum? Ég hélt um tíma að kellingin væri að halda við allt þetta fólk (sértaklega Móru systur) en fór svo að hugsa, hver myndi vilja sofa hjá útúrslitinni, vörtuvaxinni kellingu sem geðlæknar gætu notað sem heimildarskrá fyrir fræðsludoðrant um allar þekktar geðraskanir sem stéttin glímir við eftir að sögur hófust? Ekki ég alla vega og þá ennþá síður einhver annar.

 

Svo hver kannast ekki við að lenda í þessum aðstæðum að þurfa að skrifa undir þessan blekkinagarvef allan sem jólakortin eru á hverju einasta ári, ha, ég spyr hver!!

 

Ég ákvað eitt árið að nú væri komið að mér að stöðva þessi óþolandi mannlegu samskipti við annað fólk, þó þau væru ekki nema á kortum.

Ég sagði kellingunni að ég skildi sjá um jólakortin þetta árið. Henni fannst þetta undarlegt en lét undan eftir að ég mútaði henni með heilu kartoni af vindlum! (óþolandi þrjóska í þessum kellingum alltaf).

 

Jólkortin þetta árið voru prýdd með myndum af viðtakendum sjálfum við ýmsa missiðlega iðju úr hinum og þessum partýum, veislum og athöfnum sem komu sér illa bæði fyrir hjónabandið sem og mannorð þeirra. T.d. var þessi fína mynd af Brandi bróður að negla systurdóttur kellingarinnar í hjónarúminu hjá foreldrum hennar, frábær mynd af mági kellingarinnar að míga í skóinn hjá yfirmanni konunnar sinnar (systur kellingarinnar minnar) sem úskýrir kannski hvers vegna hún var rekinn daginn eftir án þess að hún hafi nokkurn tíma fengið neina skýringu á því og svo var ég einstaklega ánægður með myndina af Kalla frænda að dansa nakinn við tengdamóður mína í giftingarveislunni sinni meðan konan hans sá ekki til.

 

Eftir þessi jól hafa blóm og jólakort verið vinsamlega afþökkuð og samskipti við hrútleiðinlega ættingja og kunningja hafa minnkað til muna. Þetta er því einfalt, þægilegt og sniðugt fyrir alla aðila, stérstaklega þó mig enda varðar mig ekkert um hag annarra á heimilinu ef ég hef það gott. Endilega prufið.

 

 

Jaskur Jóns hefur saurgað sínum fróðleik í kodda landsmanna

 

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellione


» 7 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 15:47:52 / donellione

Jaskur og jólaölið

Sæl verið þið krumpukellingar og pervertískir parketleggjarar

 

Jaskurinn á nóg eftir í reynslubankanum. Næsta tips

 

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellioneHver kannast ekki við að allt jólaborðhaldið liggur undir grenjandi, æpandi, bítandi, sláandi og sofandi (pabbi sofnar alltaf oní diskinn, honum finnst við svo leiðinleg og óbærilegt áfengismagn fyrr um daginn gæti haft eitthvað að segja líka) þegar kemur að því blanda jólaölið sem er helsta orsök hjónaskilnaða og framhjáhalda yfir jólin sökum þess að enginn vill blanda þennan andskota á sama hátt þannig að vel fari í munni og maga?

 

Hver kannast ekki við að sitja einn til borðs yfir jólamatnum (reyndar pabbi líka en hann er sofandi í uppstúfinu með hangikjötssneið fasta á ennin og kartöflu í eyranu) og gúffa í sig af þvi að allir eru í fýlu yfir illa blönduðu jólaöli sem hvorki er drekkandi af því að kannan hefur ekki verið þrifin í 45 ár (gamall jólasiður frá foreldrum mínum, vil ekki skemma hann) né af því að tveimur dropum of mikið fór af appelsíni eða tveimur dropum of lítið af malti í könnudrusluna? HA hver kannast ekki við það!

 

Ég nú loks fundið lausnina við þessu. Ég er vanur að smakka vel og lengi þessa 50 lítra af jólaöli sem ég kaup árlega og hef komist að því að áfengismagnið í því minnkar með hverju árinu svo þetta er orðinn ódrekkandi andskoti og ekki verður maður svo mikið sem kenndur af þessu shiti.

Mannlegið jólaöl þykir það besta í bransanum í dag

brusi.jpg picture by donellione

Ég ákvað því að hressa aðeins við blönduna. Fyrir nokkrum jólum síðan ákvað ég að setja Egils gull bjór í staðinn fyrir jólaölið í blönduna og svei mér ef ekki minnkaði óánægjan yfir matarborðinu og yngsti sonur minn át en umfram allt drakk eins og herforingi allan tímann. Ég ákvað næstu jól að bæta smá bailys út í uppskriftina svo konan og dæturnar myndu kannski laðast að borðinu með tímanum og þær gerðu það svo sannarlega og urðu helvíti hressar yfir jólapökkunum (yngsti sonurinn kvartaði reyndar sáran yfir því hvað systir hans ældi mikið yfir pakkana hans)

 

Svo var bara að prufa sig áfram með uppskriftina og næst var að setja smá lögg (15 lítra) af illa brenndum og ógeðslegum landa í púkkið og vitir menn, pabbi reis upp frá dauðum við það að finna illsoðnandi landafnykinn og sötraði sem fastast yfir borhaldinu meðan uppstúfið dropaði í glasið hans og hangikjötsneiðin seig ámótlega niður kinnina og festist í skegginu, þar bætist ein sneið við um hver jól.

 

Nú er svo komið að ég er farinn að setja bara allt það áfengi sem ég finn og sem mér dettur í hug hverju sinni í könnuna, ég er löngu hættur að hafa malt og appelsín í uppskriftinni. Það tók lengstan tíma að gera yngstu dóttur minni til geðs (sem er 4 ára), hún lætur ekki bjóða sér eitthvert léttvínssull heldur var það gambrinn sem gerði útslagið með hana. Hún líkist föður sínum, sem er mjög gott.

Sífellt fleiri og fleiri íbúar heimilisins láta sjá sig við jólaborðhaldið

Drykkjukttur.jpg picture by donellione

Nú eru allir afskaplega hressir og kátir yfir pökkunum og restina af kvöldinu á aðfangadagskvöld svo annað eins hefur varla sést þótt sviða væri leitað. Það er kannski heldur lágtemmd stemning daginn eftir þegar fjölskyldan vaknar í misjöfnu ástandi upp úr klukkann fjögur en þá tekur við möndlugrauturinn.

 

Ég er löngu hættur að hafa möndlu í grautnum heldur er stór og góður Kúbuvindill. Í verðlaun er svo heill kassi af vindlum enda voru þessar venjulegu gjafir löngu hættar að vekja ánægju. Við reynum að láta krakkana vinna enda verða þau svo ánægð þegar þau fá vindlakassann en það er jú skilda hjá þeim sem vinnur að byrja að reykja vindla. Það þykir þeim það besta.

Reykingar þykir þörf og uppbyggjandi viðbót við nútíma uppeldi og sígarettur verða sífellt vinsælli sem gjöf í skóinn

Cowboyreykir.jpg picture by donellione

 

 

Jaskur Jóns hefur ælt sínu jólaöli í sokka landsmanna

 

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellione


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 22:01:55 / donellione

Jaskur og jólagjöfin handa kellingunni

Sæl verið þið beyglur og bölvandi umrenningar

 

Jaskur heilsar að ný með húðsprungnum lófum og taðreyktu skeggi. Nóg er eftir af vandamálum kringum jólin og hér kemur næsta ráð.

 

Hver kannast ekki við að vakna upp af áfengisdauða í skítugum kjallara í einhverju Glaur.jpg Glaður maður picture by donellioneútnáraþorpi úti á landi á þorláksmessu eftir vel útilátið fyllerí kvöldið áður, og kannast ekkert við sig og síst af öllu kannast maður við þessa hálfnöktu brjóstgóðu 18 ára stelpu sem liggur við hliðina á manni.

En hvað um það, jólin næsta dag og þá rennur það upp fyrir manni, engin jólagjöf komin í hús handa kellingunni og síðasti séns að redda því að flytja inn til aldraðrar móður minnar sem sífellt reynir að koma manni saman við tannlausar vinkonur sínar.

Mamma er alltaf hress og þekkt fyrir góða mannasiði

Gamlafuckyou.jpg picture by donellione

Að velja jólagjöf handa kellingunni er hrillingur. Ef maður kaupir of ódýra gjöf fer hún frá manni. Ef maður kaupir of dýra gjöf losnar maður aldrei við hana. Ef maður kaupir undirföt kaupir maður að sjálf sögðu þröng föt, en þá grenjar hún fram eftir ári af því að hún heldur að ég sé að segja að hún sé feit því hún kemst ekki í þau.

 

Skartgripir, ha! Ef maður kaupir of ódýrt spyr hún hvort maður haldi að hún sér einhver lágstéttarhóra sem reykir 3 pakka af winston í morgunmat og selur sig í Kolaportinu við hliðina á feita pervertinum sem er að selja myglaðar kartöflur sem úrvals epli frá Neskaupstað, að gefa henni svona ómerkilegt drasl. Ef maður kaupir of dýrt skartgripashit þá fer allt árið í það að reyna að sannfæra hana um að maður sé ekki með hjákonur út um allan bæ og sé að reyna að bæta fyrir það (þær eru ekkert um allan bæ;). Ekki þýðir að gefa henni uppþvottabursta, þá endar sá bursti ekki á góðum stað heldur mest megnis í rassgatinu á mér eins og skórnir hennar þegar hún sparkar mér út með látum.

 

Og svo þurfa gjafirnar að hækka í verði með hverju árinu, eins og það sé bara vísitölutengt hvað jólagjafir handa kellingunum eiga kosta! Það væri þó skárra að hafa einhver staðar aðgang að þeirri vísitölu, á ekki Seðlabankinn eða Hagstofan að gefa hana út?

 

Svo 11 mánuðir af árinu fara í það að reyna að sleikja upp fýluna úr kellingunni yfir misheppnaðri jólagjöf árið áður og það er ekki fyrr en í byrjun desember sem hún fær þær ranghugmyndir að halda að næsta gjöf muni bæta upp mistök síðasta árs, þvílík hugsanaháttur hjá kvenfólki, halda að karlmenn muni einhvern tíma bæta upp það sem þeir lofa? Það er álíka líklegt og að karlmenn hittist vikulega í saumklúbbum í sokkabuxum með standpínu og saumi út saman!

 

Svo hver hefur ekki lent í því að neyðast til að gera við uppþvottavélina eftir að hafa sett í hana einu sinni til að bæta upp misheppnaða jólagjöf síðasta árs og í einfeldni sinni hent nokkrum gallabuxum og skítugum síðum nærbuxum með leirtauinu af því að það er jú bæði tau (hvernig geta bolir og diskar bæði verið tau?) já, hver hefur ekki lent í því? HA!!!

 Viðgerðin á uppþvottvélinni var ódýr og einföld

Uppvottavl.jpg Uppþvottavél picture by donellione

 

Það var því aðeins eitt í stöðunni. Finna gjöf sem hún gæti sætt sig við á hverju ári. Þetta var erfitt vandamál og ég var búinn að hugsa þetta í mörg ár þegar ég loksins fann svarið. Hvað elska konur að gera? Versla. Mér datt því í hug að leyfa henni bara að versla gjöfina sjálf, hún fengi kortið mitt og gæti bara valsað búð úr búð í þessa 16 stanslausu tíma sem það tekur að skoða hvern einasta kjól, mikið er gott í þessu, ooo en hvað þessi er smart, sjá hvað þessi er druslulegur, bla bla bla. Mér er svona álíka sama um kjóla, föt og kellingarstöffið sem hún skoðar og mér er sama hversu oft kínverjinn í gámi 75 á Kárahnjúkum fer oft á klósettið á dag (bæði kúkur og piss talið með;). En ef hún hefur kortið þá get ég bara klárað einn bjórkút í rólegheitum á barnum, svona til að vera temmilegur til að keyra heim, meðan hún valsar um ganga Smáralindar og talar við sjálfa sig um hvað kjólarnir eru nú smart og úr góðu stöffi.

 

En hvað gerist ef að kona fær frjálsar hendur á kreditkorti? Jú, mikið rétt. Þá þarf maður fyrir næsta Visa-reikning að fara í Kolaportið og selja húsið, bílinn, kellinguna og klósettsetuna til að borga reikninginn og það sem meira er, maður gæti þurft að selja bjórkrúsina!

 

Ég fann hins vegar ráð við því. Ég fór bara út í búð og eyddi nánast öllu af kortinu í bílana, verkfærin og alla uppblásnu hlutina sem mig hefur langað í allt árið og skil eftir heimild uppá svona ca. 500-1000 kr. á kortinu. Málið er bara að það að fá að hafa kreditkortið og fara ein í búð og velja jólagjöfina sína sjálf er nóg til þess að hún er brosandi yfir jólamatnum, þó svo að jólagjöfin geti ekki kostað mikið.

 

Svona er nú kvenhugurinn flókinn og illskiljanlegur. Ég er alla vega sáttur, nú getur hún keypt sér happaþrennu eða skúringarmoppu í jólagjöf eins og konum ber.

Einfalt, þægilegt og sniðugt fyrir alla aðila, stérstaklega þó mig enda varðar mig ekkert um hag annarra á heimilinu ef ég hef það gott. Endilega prufið.

 

Jaskur Jóns hefur svitnað sínum fróðleik í boli landsmanna

 

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellione

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 01:07:04 / donellione

Jaskur gefur annað ráð

Sæl verið þið lufsur og larfar

 

Ég heiti Jaskur Jóns og mig langar að gefa ykkur góð ráð varðandi Glaur.jpg Glaður maður picture by donellioneþennan óþolandi jólaundirbúing og jólashit allt saman. Allir kannast við þessa föstu siði sem gera mann brjálaðann á hverju einasta ári svo manni langar til að hlaupa út á götu í skítugu nærbuxunum og rifna hlírabolnum einum fata og öskra þangað til að hestar og menn missa feldinn af hræðslu og hávaða.

 

En af áralangri reynslu minni í sambúð með hinum ýmsustu konum, jafnt trukkalessum sem og kenghoruðum fyrirsætum hef ég lært að hægt er að létta sér jólaundirbúninginn verulega með góðum og gildum, einföldum ráðum sem klikka aldrei. Ég hef því ákveðið að miðla af reynslubrunni mínum og kenna ykkur ýmsa gagnlega sambúðarósiði.

 

Hver hefur ekki lent í því að þurfa að keyra allan bæinn á enda, í næstu sveitarfélög og jafnvel þurft að berjast í stórhríð, blindbyl, aftakaveðri og smá golu til viðbótar í fljúgandi hálku á gatslitnum sumardekkjum (af því að ég týmdi ekki að splæsa í vetrardekk enda góður bílstjóri, hleypi bara ekkert kellingunni á bílinn), með ískrandi rúðuþurrkur (af því að gúmmíið kláraðist þarsíðustu jól), bilaða miðstöð bílstjóramegin (af því að ég drekkti miðstöðvarmótornum í bjór þegar ég reyndi að gera við hann síðast), sprungna vör og kvöldmatinn í skottinu (svo kellingin drepur mig þegar ég kem heim fyrir að svelta hana og börnin) alla leið á Hallormsstað til að höggva einn skitinn jólatrésræfil sem nær mér varla í pungstað en börnin verða ná upp í það til að skreyta (helvítis krakkaskrattar, ætti að senda þau í dna til að vita hvort ég eigi virkilega eitthvað í þeim!), ha hver hefur ekki lent í þessu!

 

 

Svona fór eina skiptið sem konan fékk bílinn lánaðann

Blstjrigur.jpg picture by donellione

Jú jú, við karlmenn höfum allir með tölu lent í þessu. Búnir að kaupa eitt – nei of stórt og bogin grein 4 röð neðanfrá. Kaupum annað – nei, þetta fellir barrið eftir 8 daga, það má ekki fella það fyrr en eftir 15 daga. Þetta er of snúið, þetta er of vel vaxið niður, þetta er eplatré! Bla bla bla!

 

Ég fór því eitt árið að hugsa hvað væri nú til ráða til að losa okkur karlmenn út úr þessum vítahring. Datt í hug að snúa hana úr hálsliðnum, en það er svo erfitt að grafa hana í freðna röð svo ég hætti við það. Henda henni niður stiga, það er allt of sóðalegt að hafa hana með lappirnar í allar áttir fyrir framan börnin við jólaborðhaldið, flytja út í greniskóg og búa í helli en þá nær maður ekki enska boltanum. Svo kom það, af hverju fattaði ég þetta ekki fyrr.

 

Ég fór út í Blómaval á stundinni og keypti mitt allra síðasta jólatré. Ég keypti bara risa kaktus. Ég passaði bara að kaupa það rétt fyrir lokun á aðfangadag svo ekki væri hægt að skipta því og kellingin gat ekkert sagt. Krakkarnir náttúrulega festust öll á kaktusnum þegar þau voru að skreyta hann og stórslösuðu sig, allir fínu kjólarnir og hitt fatashitið sem kellingin fékk í jólagjöf var allt orðið götótt og handónýtt eftir gaddana á plöntunni og hún var svo illa stunginn eftir að reka rassgatið í „jólatréð“ að hún gat hvorki étið né mígið sitjandi fyrr en komið var fram undir vor auk þess sem sonur minn þurfti að ganga með lepp næstu 2 ár eftir að augað sat fast á einum gaddanum þegar hann beygði sig niður að lesa á pakkana.

Jaskur miðaði stærð nýja „jólatrésins“ við ákveðinn líkamspart

kaktus.jpg picture by donellione

Eftir þetta hefur aldrei verið minnst á það að kaupa jólatré framar svo ég er algjörlega laus við allt umstangið og lífshætturnar sem því fylgdi að redda því.

Einfalt, þægilegt og sniðugt fyrir alla aðila, stérstaklega þó mig enda varðar mig ekkert um hag annarra á heimilinu ef ég hef það gott. Endilega prufið.

 

 

Jaskur Jóns hefur ropað sínum ráðum í eyru

 

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellione


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 02:28:50 / donellione

Jaskur Jóns gefur ráð

Sæl verið þið kellingar og löggur

 

Ég heiti Jaskur Jóns og mig langar að gefa ykkur góð ráð varðandi þennan óþolandi Glaur.jpg Glaður maður picture by donellionejólaundirbúing og jólashit allt saman. Allir kannast við þessa föstu siði sem gera mann brjálaðann á hverju einasta ári svo manni langar til að hlaupa út á götu í skítugu nærbuxunum og rifna hlírabolnum einum fata og öskra þangað til að hestar og menn missa feldinn af hræðslu og hávaða.

En af áralangri reynslu minni í sambúð með hinum ýmsustu konum, jafnt trukkalessum sem og kenghoruðum fyrirsætum hef ég lært að hægt er að létta sér jólaundirbúninginn verulega með góðum og gildum, einföldum ráðum sem klikka aldrei. Ég hef því ákveðið að miðla af reynslubrunni mínum og kenna ykkur ýmsa gagnlega sambúðarósiði.

 

 

Hver kannast ekki við það að vera rekinn út í byrjun desember í 20 stiga gaddi með lugnabólgu af því að reykja 2 vindlapakka á dag og berklabólgu í hægra eyra, á götóttri lopapeysu og hlandlekum stígvélum með gati að hengja upp jólaseríur í alla vegana ástandi og öllum andskotans litum á girðingar, húskanta, strompa, pústurör og pappakassa? Flestar perur týndar, sprungnar eða bráðnaðar saman af því að ég gleymdi að taka seríuna úr sambandi þegar ég setti hana í kassann eftir síðustu jól og hún er búin að loga síðan.

Að ég tali nú ekki um þær sem ég henti í hrúgu inn í garð til nágrannans, allar í sambandi, til að losna við að taka þær saman sem varð til þess að húsið hans brann stuttu síðar ásamt allri lóðinni hans og hundinum, hver kannst ekki við þessar vítiskvalir sem fylgja þessum leiðindaverkum? Ha, hver kannast ekki við það!

Bruni.jpg Húsið hans pabba picture by donellione

 

Maður þarf að príla upp á snaröfug og brött húsþök með vindilinn í munnvikinu, bumbuna út í loftið og plömmerinn upp úr brókinni með seríuflækju um hálsinn og snarkalin eistu af kulda og svo þegar kemur að því að stinga draslinu í samband þá logar ein lítil ljóstýra í hálfa mín. og svo er hún slokknuð

 

Þá þarf að kaupa allt nýtt og fara endalausar ferðir til að skila og fá eitthvað sem virkar því síðasta 21 sería virkaði ekki því þetta var svo ódýrt drasl að meira segja 5 ára kínversku börnin sem framleiddu þetta gleyma þjáningum sínum og finna til með tilvonandi eigendum (sem í þessu tilviki er ég, helvítis andskotans#$%$##!) af því að þetta er svo handónýtt drasl og mun aldrei virka lengur en 2 mín.

 

Loks þegar maður er búinn að skríða í snjósköflum kringum limgerði og klifra í 75 metra grenitrám og hrista yfir sig fuglaskít og heilum snjóþekjum ofan í hálsmálið við að setja draslið upp, fær maður frið í 2 vikur en eftir það er friðurinn úti.

 

Þá þarf að taka niður. Endalaust suð fram eftir vori og það endar náttúrulega með því að suðið er orðið svo hávært þegar nálgast sumar að maður getur ekki hækkað meira í sjónvarpinu svo enski boltinn yfirgnæfi öskrin og gargið um að jólin hafi klárast fyrir mörgum mánuðum síðan svo maður neyðist til að taka shitið niður.

 

Eitt árið hugsaði ég að nú væri nóg komið og ég þyrfti að sýna að ég væri hvorki kelling né lögga.

 

 

Þegar suðið náði 200 desibilum um að hengja upp skrautið þetta ár, fór ég upp í sveit, fann þar hálfdauðan hrút, slengdi honum á bakinu alla leið upp á strompinn og víraði hann þar rækilega fastann og setti svo nokkrar litaðar ljósaperur í rassinn á honum og viti menn, hann ljómaði allur gegnum ullina og skinnið í alla vegana litum þegar ég hækkaði strauminn all hressilega.

 

Því næst setti ég kirkislöngu meðfram öllum þakkantinum og stakk henni í samband sem myndaði alls konar falleg munstur.

 

 

Ég náði svo í nágrannann (en hann var nýkominn úr 3 stigs brunameðferð sem hann var að ljúka eftir að ég kveikti í húsinu hans um árið með jólaseríunum) og baðið sem hann var að baða sig í, stillti því upp í miðjum garðinu og henti gömlu sjónvarpi í gangi oní svo nágranninn myndaði fullt af fallegum, beinagrindslöguðum myndstrum þegar hann spriklaði um í baðkarinu.

wildparty2.jpg Heilbrigður gaur picture by donellione

Ég tók svo bílinn kellingarinnar, tjúnnaði upp benzínverkið og bætti smá nítrói við, stóð hann í botn upp í tré og kveikti svo á ljósunum, komnar þessar líka myndarlegu tvær friðarsúlur.

Að lokum hellti ég vænum slurk af benzíni yfir limgerðið, henti nokkrum stjörnuljósum í það og kveikti í.

Nú var komið fullt af ljósum í öllum garðinum og út um allt á þakinu og sum meira að segja lifandi.

Ef börnin svo mikið sem hugsa um af hverju við höfum ekki skreytt neitt eftir þetta kringum jólin eru þau umsvifalaust flengd með vel vírslitnu vörubílsdekki (með vírana vel út í loftið fyrir óþæga krakkaskratta) af kellingunni. Og ég horfi bara á sjónvarpið kringum jólin þangað til ég sofna á 4 bjórkassa fyrir framan sjónvarpið eins og hvert annað venjulegt kvöld í miðri viku.

Jaskur Jóns hefur skyrpt sínum fróðleik í andlit landsmanna

Glaur.jpg Glaður maður picture by donellione


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2007 20:25:28 / donellione

Hóruklæðandi Íslendingar, heillandi skrít og niðurbrotin umferðarlög

Vikan 4. nóvember – 10. nóvember

 

Dagur vikunnar: Mánudagur, gekk vel í vinnunni. Kíkti út í leikhús til að ræða við Jonna leikstjóra um væntanlegar framkvæmdir og smíði heilla tveggja íbúða fyrir sýninguna með stofum, herbergjum og illa lyktandi kjöllurum tilvalinna fyrir brugg og brjálaða ketti í mútum.

Í þessum glæsilega sal fór brúðkaupsveisla Jóns Ásgeirs fram

Kjallari.jpg picture by donellione

Fór svo upp í sveit með Finni til að kíkja á skemmdarverkin sem pabbi var búinn að vinna á sínu tilvonandi herbergi. Þar var allt brotið og bramlað og hafði pabbi gleymt sér í gleðinni við að eyðileggja, hann var búinn að brjóta niður heilan útvegg á húsinu, búinn að brjóta gat á steypt fjósið með berum höndum, búinn að rífa neðri hæðina á húsinu á hinum bænum og brjóta nokkur umferðarlög, þar á meðal lagið Áfram áfram bílstjóri. En þess fyrir utan er hann mjög rólegur maður að eðlisfari.

Pabbi hefur löngum verið í erfiðleikum með að muna að slökkva undir pottunum

Bruni.jpg Húsið hans pabba picture by donellione

 

Ógeðsdagur vikunnar: Miðvikudagur. Veðrið var gott fyrri hluta dagsins og lífið blasti við okkur Agli, ánægjan skein úr ungæðislegum brosum okkar og fuglar sungu sinfóníur gleðinnar sjálfrar um leið og hryssur hlupu á skeið og skvettu þvagi og saur í mjúkan móann. En svo kom rigning og slydduógeð, allt fór að ganga illa í vinnunni og við Egill náðum ekki að klára að slá upp eins og við stefndum að heldur lá við að veggirnir hryndu niður í staðinn fyrir að byggjast upp fyrir steypuna næsta morgun. Ill öfl reikuðu allt í kringum okkur í þunglyndi okkar og gott ef við sáum ekki Djöfulinn sjálfan drepa einhvern bakvið næsta hól, það gæti þó hafa verið einhver óbreyttur og ómerkilegur fjöldamorðingi.

Djöfullinn þykir afbragðskokkur, sérstaklega á mannakjöt, morðingjablóðmör og túristapylsur 

Devil.gif Djöfullinn picture by donellione

Vinur vikunnar: Jobbi kallinn stóð fyrir sínu í nafni leikfélagsins undanfarna daga. Hann vildi ólmur koma með Stebba þegar við vorum að ferja leikmyndina úr Pakkhúskjallaranum niður í leikhús, lagðist í gólfið og grenjaði þangað til Stebbi leyfði honum að fara með. Hann var fljótur að átta sig á því hversu yndislegt fólk við erum og hann gaf leikfélaginu því ísskápinn sinn. Auk þess kom hann að smíða með okkur á laugardaginn eins og herforingi (var nú svolítið hallærislegur, klæddur eins og herforingi með smíðavestið;).   

Jobbi leggst aldrei til hvílu nema vera klæddur sínu fínasta pússi

Jobbi.gif Jobbi Jobbason picture by donellione

Vinkona vikunnar: Fjóla, 36 ára kona sem við Gugga og Egill hözluðum á Kaffi Krús á laugardaginn ásamt vinkonu hennar. Þær eru nú heldur betur fyrir „unga“ fólkið þessar gömlu kellingar, um leið og við sýndum þeim skilríki æstust þær upp og rifu af sér fötin og dönsuðu hula hula uppi á borði. Eftir þessar gríðargóðu undirtektir tókum við hana með á ball á Draugabarnum en hún var nokkrum númerum of gömul fyrir það, sívælandi yfir að eiga 75 börn og að hún gæti verið amma allra þarna inni og afi og stjúpfjarskyldisfrænkubarn þeirra líka. Sagði að ég væri skrítinn en samt á einhvern hátt heillandi. Heillandi, ha ha, þvílík og önnur eins vitleysa. Það fær mig til að halda að hún sé alvarlega veik á geðsmunum, líklega með geðröskunarveikingarsýki í hægra hanskahólfi

Þessar föngulegu konur kynntu nýju vetrartískuna í Kringlunni liðna helgi

hula-damer-eks-2.jpg Hula hula picture by donellione

 

Viðburður vikunnar: Sumum er nú ekki viðbjargandi í vitleysu sinni. Ekki veit ég hver átti þá hugmynd að fá mig sem kynnir á körfuboltaleik hjá FSu en þeir munu seint bíða þess bætur enda hafa heimleikir þeirra verið bannaðir næstu 30 ár og Siðferðisráð ríkisins er að rannsaka málið.

 

Fjölskyldumeðlimur vikunnar: Finnur, var duglegur að fara upp í sveit til pabba með mér til að laga húsið, éta matinn hans og henda niður póstinum hans. Duglegur strákur

 

Gleðistund vikunnar: Það var mikið gleðiefni að sjá árangurinn í sviðsmyndinni á laugardaginn, við náðum að smíða heila íbúð að mestu leiti, tilbúið til æfinga og ærumeiðinga

Íslensk hús þykja vera öðrum húsum framar í gæðum

Kofi.jpg Vistleg íbúð picture by donellione

Vonbrigði vikunnar: Bíllinn, bilaður einu sinni enn og aftur og aftur og jafnvel enn og aftur. Þetta fer að verða svona copy paste færsla

 

Fynd vikunnar: Viktor í Húsasmiðjunni á fyndið þessa vikuna. Hann ætlaði að búa til nýtt verkfæri fyrir mig. Ég var að leita að loftpinnabyssu og loftheftibyssu í sama tækinu sem var ekki til. Viktor sagði að það væri lítið mál að redda því, hann tæki bara sitthvora byssuna þegar búið væri að loka og enginn sæi til, legði þær á gólfið og myndi svo hoppa á þeim þangað til þær væru komnar saman í eina, málið dautt.

Hann sagði mér líka sögu af því þegar vinnufélagi hans, sem vann upp á Sólheimum í Grímsnesi í nokkur ár, var spurður hvernig væri að vinna með Viktori. Hann svaraði því til að það væri bara alveg eins og að vinna upp á Sólheimum að vinna með Viktori

Sólheimaglottið alltaf jafn töff

 

Ktturgeyspar.jpg Viktor hress picture by donellione

 

Myndin um kindurnar og nautið eftir Laugardagslögin kom einnig sterklega til greina sem fyndið, einstaklega skemmtilegir þættir alltaf fyrir atkvæðagreiðsluna. Held ég sé ekki að ljúga að þeir sömu geri þessar myndir og gerðu kvikmyndina Chickenrun hér um árið, leirfígúrumyndir og líka Wallace and Gromit ef einhverjir muna eftir þeim. Endilega fylgist með þessu

 

Gleymska vikunnar: Í rúma viku náði ég að gleyma að tékka á því að koma bílnum á verkstæði. Ég hef ekki munað eftir því enn

 

Óvænt vikunnar: Vera beðinn að vera kynnir á FSu leiknum, datt ekki í hug að nokkur maður væri tilbúinn í svoleiðis áhættu

 

Lag vikunnar: Lagið hans Barða í sjónvarpinu. Lagið sjálft var ömurlegt en sviðsetningin fannst mér fyndin, þvílíkir vaxtaræktargaurar með lítil typpi og ekkert í hausnum að spila á hljóðfæri sem þeir gátu ekki einu sinni haldið á af þvi að loftfylltu ofurvöðvarnir þeirra náðu ekki að kreppa nógu mikið til að valda litlu hljóðfærunum. Sérstaklega var vöðarumurinn með steinrunna andlitið á trommunum fyndinn, maður sá Bari.jpg picture by donellioneangistina hjá honum að reyna að halda takti í ímynduðum trommuleik hans og horfa fram á sama tíma, ansi mikið lagt á karlmannsgreyið að gera þetta tvennt í einu. Svo var líka söngkona myndarleg, það skemmdi ekki fyrir.

Barði er að mínu vitu misskilinn snillingur og hann sýnir með þessu hvað honum er skítsama um þessa keppni með því að gera endalaust grín að henni með þessu lagi.

 

Skítalag vikunnar: Lagið sjálft frá Barða var hreinn viðbjóður svo það kemst nokkuð örugglega á toppinn í haughúsi laganna þessa vikuna

 

Símtal vikunnar: Símtalið við Stebba sem átti að vera voða saklaust og taka örfáar mín. en entist frá Fífunni í Lögbergsbrekkuna. Ég man nú ekkert hvor hringdi eða um hvað var rætt en ef ég þekki okkur félagana rétt þá hafa rassgöt, kattarhilgdir, 75, Sörli Jóns og hórkerlingar verið ofarlega í umræðulistanum

 

Vitleysa vikunnar: Skítaveðrið alltaf sem er búið að vera. Frá því ég man eftir mér fyrst (sem er ca. fyrir hálfri mín.) hef ég bara ekki vitað til þess að það hafi rignt í 3 mánuði samfleitt nánast. Hvað er að þessu veðri, maður lifir það nú af það komi 2-3 vikur með skítaveðri en 3 mánuðir, hvað er það? Erum við á Íslandi kominn inn í eitthvert Monsoontímabil, regntímabil líkt og kemur árlega í SA-Asíu? Það hefur verið þrenns konar veður undanfarna 3 mánuði. Rok og rigning, óveður og rigning og slydda. Eru veðurfræðingarnir búnir að týna hinum veðurmerkingunum eða er þetta bara syndaflóð? Það kæmi svo sem ekkert á óvart að það ætti að drekkja Íslendingum fyrir síkaupandi, hóruklæðandi, dópnotandi og ofbeldisfyllandi syndir þeirra svífandi um í kaupæði og svikamyllum hversdagsins. Ég er farinn út að smíða örk, ætli árabátur sé ekki nóg fyrir Sörla Jóns, Snata Jóns og Brand Jóns?

Þessir þremenningar eru taldir líklegir til að leiða næstu ríkisstjórn

 Hundatffari.jpg picture by donellione Ktturreyttur.jpg Brandur dauður picture by donellione SrliJns2.jpg picture by donellione

 

Þessi listi var mjög svo óvísindalega unninn af Skeggræktunarfélagi Samvinnufélagassamtaka austur-Perú sunnan Lima og Atvinnuétaraklúbbi ofþornaðra yfirstéttahóra og hestamanna Vopnafjarðar

Loðinn Rass, formaður Skeggræktunarfélagsins rakaði sig 2 mín. áður en þessi mynd var tekin

Loinnleppur.jpg picture by donellione


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox